Fréttasafn

|

18.12.2019

Breyt­ingar á vátrygg­inga­skyldu torfæru­tækja

Frá næstu áramótum verður slysa­trygging ökumanns og eiganda ekki lengur skyldu­trygging á torfæru­tæki sem ekki eru ætluð til notk­unar í almennri umferð. Við munum þó áfram bjóða upp á trygg­inguna en með breyttum skil­málum. Breyt­ingin er sú, að varan­legur miski þarf að ná 15 stig­um til þess að slysið sé bóta­skylt.

Ef þú átt torfæru­tæki og vilt að trygg­ingin sé felld niður þá getur þú gert það með því að senda okkur póst á vis@vis.is. Ef þú vilt halda trygg­ing­unni þarftu ekki að bregðast við.

Ef þú bætir við þig nýju tæki þarftu að óska sérstak­lega eftir slysa­trygg­ingu ökumanns og eiganda á tækið.

Til þess að fræðast meira um þessar breyt­ingar, þá geturðu kynnt þér spurt og svarað hér.

Fréttasafn
Deila frétt