Fréttasafn

|

24.04.2019

Breyt­ingar á útleigu barna­bíl­stóla hjá VÍS

Börnin eru það dýrmæt­asta sem við eigum. Undan­farin 25 ár höfum við hjá VÍS hjálpað við að gæta öryggis barna í umferð­inni með útleigu á öruggum barna­bíl­stólum.

Börnin eru það dýrmæt­asta sem við eigum. Undan­farin 25 ár höfum við hjá VÍS hjálpað við að gæta öryggis barna í umferð­inni með útleigu á öruggum barna­bíl­stólum. Þörfin var mikil þegar við hófum þessa vegferð enda sýndu kann­anir á þeim tíma að yfir 30% barna voru laus í bílum og aðgengi að vönd­uðum og öruggum barna­bíl­stólum lítið.  Í dag heyrir það til undan­tekn­inga að börn séu ekki í bílstólum og úrvalið af öruggum stólum hefur aldrei verið betra.  Við teljum að nú sé tíma­bært að beina kröftum okkar að öðrum forvarnar- og örygg­is­verk­efnum þar sem þörfin er meiri.

Þess vegna mun VÍS frá deginum í dag hætta útleigu á barna­bíl­stólum. Ef viðskipta­vinir eru með barna­bíl­stól á leigu geta þeir haldið áfram að leigja hann en ekki skipt honum út fyrir nýjan stól. Þegar stóllinn verður óþarfur er hægt að skila honum til barna­bil­stol­ar.is Síðumúla 27a. Þar er einnig gengið frá lokum leigu­samn­ings.

Fyrir þá sem þurfa nýjan barna­bíl­stól bendum við á fríð­inda­síðu okkar en þar eru upplýs­ingar um þá aðila sem veita viðskipta­vinum VÍS afslátt af barna­bíl­stólum og öðrum forvarna- og örygg­is­vörum.

Fréttasafn
Deila frétt