Fréttasafn

|

30.12.2019

Allir upp með örygg­is­gler­augun

Hjá mörgum eru flug­eldar, með allri sinni ljósa­dýrð á himni, órjúf­an­legur partur áramót­anna. Flug­eld­arnir eru þó ekki hættu­lausir og mikil­vægt er að fara nákvæm­lega eftir leið­bein­ingum til að koma í veg fyrir slys.

Algengast er að slasa sig  á höndum og augum. Því eru örygg­is­gler­augu og ullar- eða skinn­hanskar nauð­syn­legir til  þess að koma í veg fyrir slík slys. Við höfum tekið saman stutt mynd­band með því helsta sem þarf að hafa í huga. Við hvetjum alla til að gefa sér tíma til þess að til að fara þessi atriði - því ávallt er best er að koma í veg fyrir að slysin eigi sér stað. Öll viljum við eiga gleðileg og slysa­laus áramót.

  • Fara yfir leið­bein­ingar.

  • Passa uppá börn og virða aldurs­mörk á vörum.

  • Gera ráðstaf­anir með dýr.

  • Nota örygg­is­gler­augu og ullar- eða skinn­hanska.

  • Geyma vörur fjarri skot­stað og ekki í vasa.

  • Virða fjar­lægð­ar­mörk frá skot­stað.

  • Nota stöð­ugar undir­stöður.

  • Tendra í með útréttri hendi, og víkja strax frá.

  • Ef vara virkar ekki láta hana vera í nokkrar mínútur.

  • Ekki meðhöndla flug­elda ef vímu­efna hefur verið neytt.

Fréttasafn
Deila frétt