Fréttasafn

|

11.04.2019

33 ökutækja­tjón á dag hjá VÍS

Á hverjum degi síðasta árs bárust að meðal­tali 33 tilkynn­ingar um ökutækja­tjón til VÍS, samtals rúmlega tólf þúsund tjónsat­burðir. Tala sem gróf­lega má marg­falda með þremur til að fá út heild­ar­fjölda tjóna sem tilkynnt voru til trygg­inga­fé­lag­anna.

Á hverjum degi síðasta árs bárust að meðal­tali 33 tilkynn­ingar um ökutækja­tjón til VÍS, samtals rúmlega tólf þúsund tjónsat­burðir. Tala sem gróf­lega má marg­falda með þremur til að fá út heild­ar­fjölda tjóna sem tilkynnt voru til trygg­inga­fé­lag­anna. Febrú­ar­mán­uður var tjóna­þyngstur og voru 75 tjón sem komu inn þann dag þegar tilkynn­ingar voru flestar.

Auðvitað skiptir mestu máli hvort slys hafi orðið á fólki en rúmlega tveir einstak­lingar að meðal­tali leituðu sér lækn­is­hjálpar í kjölfar tjóna eða í um 5% tilkynn­inga.

Lang­flest tjónin urðu þegar bakkað var á eða um 26% en þar eru slys á fólki fátíð. Aftaná­keyrslur stóðu fyrir 15% af tjónum en í þeim fær fólk oft erfiða háls- og baká­verka. Um 11% tjóna urðu þegar ekið var á annan bíl sem stað­settur var við vegbrún eða í stæði við hana.

Hvort ökutækja­tjón verður eða ekki er samspil margra mismun­andi þátta. Nær allt gatna- og vega­kerfi okkar gæti verið betra en auk þess gætu eftir­far­andi fimm atriði hjálpað ökumönnum að fækka tjónum og slysum.

  1. Ökumaður sé með alla athyglina við akst­urinn

  2. Ökumaður taki mið af aðstæðum við akst­urinn

  3. Ökumaður sjái til þess að nægt bil sé á milli hans bíls og bílsins fyrir framan

  4. Ökumaður leitist við að bakka ávallt í stæði

  5. Ökumaður sé vel úthvíldur

VÍS hvetur ökumenn sérstak­lega til að flýta sér hægt nú þegar sól fer hækk­andi því samhliða því hefur hraði ökutækja tilhneig­ingu til að aukast.

Fréttasafn
Deila frétt