Fréttasafn

|

19.09.2018

VÍS verði staf­rænt þjón­ustu­fyr­ir­tæki

VÍS hefur í samræmi við nýja fram­tíð­arsýn sína um að verða staf­rænt þjón­ustu­fyr­ir­tæki ákveðið að endur­skipu­leggja og einfalda fyrir­komulag þjón­ustu við viðskipta­vini þannig að aukin áhersla verði lögð á staf­rænar lausnir.

VÍS hefur í samræmi við nýja fram­tíð­arsýn sína um að verða staf­rænt þjón­ustu­fyr­ir­tæki ákveðið að endur­skipu­leggja og einfalda fyrir­komulag þjón­ustu við viðskipta­vini þannig að aukin áhersla verði lögð á staf­rænar lausnir. Í kjöl­farið verða þjón­ustu­skrif­stofur VÍS víðs vegar um landið samein­aðar í sex öflugar þjón­ustu­skrif­stofur á Selfossi, Egils­stöðum, Akur­eyri, Sauð­ár­króki, Ísafirði og Reykja­vík. Breyt­ing­arnar taka gildi 1. október næst­kom­andi.

Samskipti við viðskipta­vini fara í síauknum mæli fram í gegnum net og síma og samkvæmt þjón­ustu­könn­unum kalla viðskipta­vinir eftir aukinni þjón­ustu á þeim vett­vangi. Áherslu­breyt­ingum í þjón­ustu er ætlað að svara þessu kalli. VÍS hefur undan­farið unnið að því að gera þjón­ustu við viðskipta­vini aðgengi­legri og einfaldari með staf­rænum leiðum. Sem dæmi um það geta viðskipta­vinir VÍS nú tilkynnt öll tjón á Mitt VÍS.

Helgi Bjarnason forstjóri VÍS:

Fréttasafn
Deila frétt