Fréttasafn

|

28.11.2018

Virkur reyk­skynjari getur bjargað lífi

Flestir brunar á heim­ilum verða í desember og þar fast á eftir fylgir janúar. Það er því mikil­vægt að nota upphaf aðvent­unnar til að fara yfir reyk­skynjara heim­il­is­ins. Skipta um rafhlöðu og tryggja að allir reyk­skynj­arar séu í lagi. Muna þarf að líftími reyk­skynjara er 10 ár þannig að eftir þann tíma þarf að skipta þeim út.

Virkir reyk­skynj­arar eru gríð­ar­lega mikilvæg örygg­is­tæki á heim­ilum. Þeir hafa margsannað gildi sitt og bjargað mörgum manns­lífum. Þeir vöktu til að mynda heim­il­is­fólk í brun­anum sem fjallað er um . Flestir brunar á heim­ilum verða í desember og þar fast á eftir fylgir janúar. Það er því mikil­vægt að nota upphaf aðvent­unnar til að fara yfir reyk­skynjara heim­il­is­ins. Skipta um rafhlöðu og tryggja að allir reyk­skynj­arar séu í lagi. Muna þarf að líftími reyk­skynjara er 10 ár þannig að eftir þann tíma þarf að skipta þeim út. Það er því í raun ágætis lausn að kaupa reyk­skynjara með 10 ára rafhlöðu þó það sé dýrara í upphafi.

Undan­farin ár hefur heim­ilum fjölgað þar sem eru fjórir eða fleiri uppsettir reyk­skynj­arar sem er vel. Enn er þó 4% heimila án reyk­skynjara og er hlut­fall þeirra lang­hæst í aldurs­hópnum 25 til 34 ára þar sem 10% er án reyk­skynj­ara. Það er mikið áhyggju­efni því þar eru einstak­lingar að byrja að búa og stofna fjöl­skyldu. Tilvalin innflutn­ings­gjöf til þessa aldurs­hóps er því eldvarna­bún­aður.

Við hvetjum alla til að huga að eldvörnum heim­il­isins í byrjun aðvent­unnar. Fara yfir reyk­skynj­ar­ana, tryggja að allir viti hvar eldvarna­teppi og slökkvi­tæki eru geymd og kunni að nota þann búnað og fjár­festa í honum ef hann er ekki nú þegar til staðar.

Fréttasafn
Deila frétt