Fréttasafn

|

10.01.2018

Verum viðbúin veðrinu á morgun

Samkvæmt Einari hjá Veður­vakt­inni verður veður á morgun, 11. janúar, svipað að líkindum og það sem gekk yfir í gærmorgun og verður aftur verst SV-lands. Vind­hraðinn verður 20-25 m/s og nær hámarki á milli kl. 17 og 19 þegar margir verða á leið heim úr vinnu. Á höfuð­borg­ar­svæðinu verður hvassast í eftir byggðum, við Rauða­vatn, nýju hverfum Kópa­vogs og í Valla­hverfinu í Hafnar­firði.

Samkvæmt Einari hjá Veður­vakt­inni verður veður á morgun, 11. janúar, svipað að líkindum og það sem gekk yfir í gærmorgun og verður aftur verst SV-lands. Vind­hraðinn verður 20-25 m/s og nær hámarki á milli kl. 17 og 19 þegar margir verða á leið heim úr vinnu. Á höfuð­borg­ar­svæðinu verður hvassast í eftir byggðum, við Rauða­vatn, nýju hverfum Kópa­vogs og í Valla­hverfinu í Hafnar­firði. Hviður verða allt að 35-40 m/s á Reykja­nes­braut og á Kjal­ar­nesi þegar verst lætur. Hríð­ar­veður og hálka verður austur yfir Hell­is­heiði á þessum tíma.

Veðrið gengur hratt yfir en fljót­lega upp úr kl. 19 eða 20 gengur það niður á höfuð­borg­ar­svæðinu og Suður­nesjum.

Við hvetj­um ein­stak­linga og fyrir­tæki til að gæta að öllum lausa­munum utan­dyra og gæta að hvort eitt­hvað hafi losnað í síðasta óveðri sem þurfi að festa betur. Best er að bíða með að fara á milli staða á meðan veðrið gengur yfir. Ef það er ekki hægt þarf að skoða og áður en lagt er af stað og gæta vel að bílhurðum þar sem þær geta auðveld­lega fokið upp þegar þær eru opnaðar.

Fréttasafn
Deila frétt