Fréttasafn

|

16.04.2018

Vegna brunans í húsnæði Geymslna að Miðhrauni 4

Kæri viðskipta­vinur. Ef þú áttir muni eða búslóð í geymslu í húsnæðinu að Miðhrauni 4 hefur mögu­lega reynst erfitt að fá upplýs­ingar um stöðu mála. Við vonum að eftir­far­andi upplýs­ingar verði þér að gagni.

Unnið hefur verið að því undan­farna daga að rann­saka vett­vang brun­ans, meðal annars til að safna gögnum og upplýs­ingum um upptök hans. Að því loknu tók við vinna við að gera vett­vanginn öruggan svo hægt sé að vitja þeirra verð­mæta sem enn eru í húsnæð­inu.

Nú, þegar þeirri vinnu er lokið, hafa Geymslur ehf. hafið undir­búning að því að afhenda hluta af þeim munum sem voru í geymslum á neðri hæð húsnæð­is­ins. Starfs­menn Geymslna munu hafa samband við þessa aðila fljót­lega þeim þá gert kleift að koma og sækja sína hluti

Ef þú ert í þeim hópi þá hvetjum við þig til að taka myndir af þeim hlutum sem þú áttir í geymsl­unni. Bæði þeim hlutum sem virðast skemmdir og þeim sem virðast óskemmdir. Þetta mun einfalda alla vinnu við að átta sig á stöð­unni og greiða þér þær bætur sem þú átt rétt á.

Með kærri kveðj­u,­Starfs­fólk VÍS

Fréttasafn
Deila frétt