Fréttasafn

|

11.10.2018

Vatns­tjón vegna ofna á 3ja daga fresti

Vatns­tjón vegna leka út frá ofnum eru algeng á íslenskum heim­ilum en 3ja hvern dag er slíkt tjón tilkynnt til VÍS. Oft má sjá fyrir­boða slíks tjóns á ofnum, til dæmis ryðbletti eða útfell­ingar á samskeytum. Það er því mikil­vægt að skoða ofnana og skipta þeim út, ef þessi einkenni eru sýni­leg.

Á haustin eykst álag á ofna­kerfið þegar kólnar á ný. Þá er algengt að ofnarnir hitni ekki almenni­lega eftir að hafa haft lítið rennsli yfir sumarið. Til að koma rennsli af stað er einkum þrennt sem getur þurft að gera:

  • Liðka pinnann til sem er bakvið hita­nemann (termóstatið)

  • Skipta um pakk­dósina sem pinninn er í

  • Tæma loft af ofninum með þar til gerðum lykli

Mikil­vægt er að bera sig rétt að þegar farið er yfir þessa hluti. Ef fólk kann ekki til verka þá mælum við með að fagmaður sé fenginn í verkið. Ef eitt­hvað fer úrskeiðis getur heitt vatn lekið með tilheyr­andi hættu á að menn brenni sig eða vatns­tjón verði.

Við hvetjum alla til að gefa sér tíma til að skoða ástand ofnanna á heim­il­inu, en samkvæmt tölfræði okkar verða flest vatns­tjón út frá ofnum í október til desem­ber.

Fréttasafn
Deila frétt