Fréttasafn

|

08.10.2018

Vara­samur fólki og lögnum

Á dögunum var frétt á Feyk­ir.is þar sem Björgvin Jónsson sagði frá slysi sem hann varð fyrir þegar stíflu­eyðir var opnaður. Alvar­legur sýru­bruni varð á fótum hans og hann frá vinnu í tæpa þrjá mánuði. Frásögn sem minnir okkur á hversu hættuleg þessi efni eru.

Á dögunum var frétt á þar sem Björgvin Jónsson sagði frá slysi sem hann varð fyrir þegar stíflu­eyðir var opnaður. Alvar­legur sýru­bruni varð á fótum hans og hann frá vinnu í tæpa þrjá mánuði. Frásögn sem minnir okkur á hversu hættuleg þessi efni eru.

En það er ekki allt. Þessi efni geta einnig tært lagnir og þétti­hringi á samskeytum þeirra. Nokkur húsráð eru til sem geta reynst vel og komið í stað þessara efna. Má þar nefna að setja matar­sóda í niður­fallið og þar á eftir borð­e­dik. Láta það verka í um 30 mínútur og setja mjög heitt vatn á eftir eða fjár­festa í svoköll­uðum stíflug­ormi og nota hann til að losa stífl­una.

Fréttasafn
Deila frétt