Fréttasafn

|

04.09.2018

Vanmetum ekki bilið

Mikil­vægt er að taka tillit til þess þegar umferðin þéttist eftir sumarið í skipu­lagi dags­ins. Reyna ekki að auka hraðann á stút­fullum götum, skjóta sér á milli raða eða taka aðrar óþarfa áhættur sem auka m.a. líkur á aftaná­keyrslum sem er önnur algeng­asta orsök ökutækja­tjóna hjá viðskipta­vinum VÍS.

Um leið og skólar byrja þéttist umferð gríð­ar­lega á höfuð­borg­ar­svæð­inu. Mikil­vægt er að taka tillit til þess í skipu­lagi dagsins en reyna ekki að auka hraðann á stút­fullum götum, skjóta sér á milli raða eða taka aðrar óþarfa áhættur sem auka m.a. líkur á aftaná­keyrslum sem er önnur algeng­asta orsök ökutækja­tjóna hjá viðskipta­vinum VÍS.

VÍS hvet­ur öku­menn til að sýna þá þolin­mæði sem þarf til að hafa nægj­an­lega langt bil á milli bíla. Erfitt er að segja í metrum hver lengdin á að vera. Það fer m.a. eftir hraða ökutækis, yfir­borði vegar og ástandi dekka. Gott getur verið að hafa þriggja sekúndna regluna sem viðmið. Miða við ákveðinn stað sem bílinn á undan ekur fram hjá og gæta þess að a.m.k. þrjár sekúndur líði áður en ekið er fram hjá sama stað.

Á hverju ári lendir að meðal­tali tíunda hvert ökutæki sem tryggt er hjá VÍS í tjóni. Hver og einn ökumaður getur gert mikið til að minnka líkur á slysi og hvetur VÍS alla til að gera það sem í þeirra valdi er til að svo megi vera.

Fréttasafn
Deila frétt