Fréttasafn

|

31.01.2018

Umhleyp­ingar í veðri

Aðfaranótt föstu­dags má búast við tölu­verðum vatnselg í öllum þétt­býlis­kjörnum sunnan- og vest­an­lands með hættu á að vatn finni ekki réttar leiðir og berist inn í hús og skapi þar tjón sem eru yfir­leitt ekki bóta­skyld.

Annað kvöld brestur á með SA-stormi og hríð­ar­veðri, einkum eftir kl. 21 um allt vest­an­vert landið. Um miðnætti hlánar svo og gerir um 5 stiga hita um nótt­ina, frá miðnætti til um kl. 08 um morg­un­inn, þegar kólna fer aftur. Tals­vert rignir á þessum tíma og þar sem nokkur snjór er til staðar, 5-10 cm, má búast við tölu­verðum vatnselg í öllum þétt­býlis­kjörnum sunnan- og vest­an­lands með hættu á að vatn finni ekki réttar leiðir og berist inn í hús og skapi þar tjón sem eru yfir­leitt ekki bóta­skyld.

Við hvetjum alla til að nota góða veðrið í dag til að hreinsa frá niður­föllum, taka snjó af svölum og búa til rásir fyrir vatnið svo það komist sína leið. Ekki tekur jörðin við því eins frosin og hún er.

Ekki verður eins mikill bloti fyrir norðan en búast má við að enn hálla verði þar fyrir gang­andi þó mörgum finnist nóg um eins og staðan er í dag. Þá er gott að vera vel skóaður og með brodda.

Fréttasafn
Deila frétt