Fréttasafn

|

18.10.2018

Trygg­inga­fé­lögin styrkja hjarta­deild Land­spítala um 18 millj­ónir

Þann 16. október sl. undir­rituðu Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja og hjarta­deild Lands­spítala samning um að vátrygg­inga­fé­lögin Sjóvá, TM, VÍS og Vörður styrki hjarta­deildina um 18 millj­ónir króna á næstu árum.

Þann 16. október sl. undir­rituðu Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja og hjarta­deild Lands­spítala samning um að vátrygg­inga­fé­lögin Sjóvá, TM, VÍS og Vörður styrki hjarta­deildina um 18 millj­ónir króna á næstu árum.

Styrk vátrygg­inga­fé­lag­anna til hjarta­deildar verður varið til að stór­efla fræðslu og forvarn­ar­starf  á vegum hennar. Hjarta- og æðasjúk­dómar eru helsta dánar­orsök Íslend­inga og því þykir vel við hæfi að vátrygg­inga­fé­lögin styðji við hjarta­deild Land­spítala með þessum hætti. 

Í fyrstu verður megin­áherslan á að styrkja svokall­aðar annars stigs forvarnir, það er forvarnir hjá þeim sem hafa þegar greinst með kransæða­sjúk­dóm. Það felur meðal annars í sér reyk­leys­is­með­ferð, meðferð við háþrýst­ingi, sykur­sýki og hækkuðu kólester­óli. Einnig verður skoðað hvernig best er að efla forvarnir hjá þeim sem enn hafa ekki greinst með hjarta­sjúk­dóm. Í því tilliti kynni að vera áhuga­vert að beina sjónum fyrst og fremst að yngri kynslóð­um. 

Samn­ing­urinn felur meðal annars í sér þróun vefsíðu með gagn­virku fræðslu­efni um kransæða­sjúk­dóma. Styrk­urinn verður einnig nýttur til umbóta á aðstöðu sjúk­linga og aðstand­enda þeirra sem liggja á hjarta­deild. Þá verður enn fremur lagt fé til eflingar starfs­þró­unar starfs­fólks deild­ar­inn­ar. 

„Vátrygg­inga­fé­lögin gegna mikil­vægu hlut­verki í samfé­laginu þegar kemur að fræðslu og forvörnum. Forvarnir eru ákaf­lega mikil­vægar þegar kemur að vörnum gegn sjúk­dómum á borð við hjarta- og æðasjúk­dóma. Þar getur lífs­stíll og mataræði til að mynda skipt miklu máli til þess að koma í veg fyrir slíka sjúk­dóma. Samkomulag vátrygg­inga­fé­lag­anna og hjarta­deildar er því mikið fagn­að­ar­efni og mun án efa skila miklum árangri þegar fram í sækir,“ segir Katrín Júlí­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja. 

Davíð O. Arnar, yfir­læknir hjarta­lækn­inga á Land­spítala segir „Þetta er mjög áhuga­vert samstarf og sýnir í hnot­skurn hversu mikla áherslu við viljum leggja á forvarn­astarf og heilsu­efl­andi aðgerðir á komandi árum. Það skyldi nefni­lega seint vanmeta jákvæð áhrif þátta eins og hreyf­ingar, holls mataræðis, kjör­þyngdar og góðra svefn­venja á heil­brigði,“ bætir  

Bylgja Kærnested deild­ar­stjóri hjarta­deildar Land­spítala segir að lokum: „Til viðbótar við forn­varn­a­starfið eru með þessum samn­ingi sköpuð mikilvæg tæki­færi til að bæta aðstöðu á deild­inni svo og efla starfs­þróun hjá þeim sem starfa á hjarta­deild. Það er ekki síst mikil­vægt þegar gríð­arleg samkeppni er um heil­brigð­is­starfs­fólk, sérstak­lega hjúkr­un­ar­fræð­inga.“

Fréttasafn
Deila frétt