Fréttasafn

|

04.12.2018

Treystum því græna ekki í blindni

Í síðustu viku lentu 10 ára strákur á hjóli og bíll sem var á leið­inni frá Miklu­braut norður Löngu­mýri í Reykjavík saman. Betur fór en á horfð­ist. Stuð­ara, ljós, hjálm og hjól þarf að endur­nýja en það sem mestu skiptir er að dreng­urinn slapp nokkuð vel. Mar, skrámur og tognun er það sem sat eftir en sjokkið eflaust erfiðast bæði fyrir strákinn og bílstjórann en Stöð 2 fjallaði um óhappið í fréttum hjá sér.

Fréttasafn
Deila frétt