Fréttasafn

|

07.02.2018

Síminn hlaut forvarn­ar­verð­laun VÍS

Reykjalundur og Endur­vinnslan fengu einnig viður­kenn­ingar fyrir góðan árangur í öryggis- og forvarn­ar­málum.

Síminn hlaut í dag forvarn­ar­verð­laun VÍS sem veitt voru við hátíð­lega athöfn á forvarna­ráð­stefnu VÍS sem haldin var á Hilton Nordica hótel­inu. Þetta er í níunda sinn sem VÍS verð­launar fyrir­tæki fyrir góða frammi­stöðu í barátt­unni gegn vinnu­slysum.

Að mati dómnefndar er Síminn fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tæki í forvörnum og örygg­is­málum. Sem dæmi um það starfar Síminn samkvæmt vottuðu örygg­is­stjórn­un­ar­kerfi. Til að viðhalda öflugri öryggis­vitund og örygg­is­menn­ingu heldur fyrir­tækið meðal annars reglu­bundnar vitund­ar­vakn­ing­arkynn­ingar fyrir alla starfs­menn.

Reykjalundur og Endur­vinnslan fengu einnig viður­kenn­ingar fyrir góðan árangur í öryggis- og forvarn­ar­málum

Orri Hauks­son, forstjóri Símans, veitti verð­laun­unum viðtöku í dag. Hann þakkar VÍS kærlega fyrir viður­kenn­ing­una.

„Hún hefur mikla þýðingu fyrir okkur, því hún stað­festir að Síminn sinnir forvörnum afar vel og er ábyrgt fyrir­tæki. Við náum aldrei enda­punkti þegar kemur að forvörnum, heldur þurfum stöðugt að vera á verði, fyrir­byggja slysin, uppfæra áhættumat og búnað og tryggja öryggi bæði starfs­manna okkar og viðskipta­vina. Góður aðbún­aður starfs­fólks skilar sér í betri þjón­ustu og ánægðari viðskipta­vinum. Þannig auðveldum við þeim þá ákvörðun að treysta okkur til að halda utan um dagleg samskipti sín. Öflugar forvarnir og ýtrasta öryggi eru því allra hagur.“

Á mynd­inni eru frá vinstri: Gísli Níls Einarsson forvarn­ar­sér­fræð­ingur hjá VÍS, Auður Björk Guðmunds­dóttir fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu hjá VÍS, Orri Hauksson forstjóri Símans, Helgi Lárusson fram­kvæmda­stjóri Endur­vinnsl­unnar, Helgi Kristjónsson fram­kvæmda­stjóri reksturs hjá Reykjalundi og Helgi Bjarnason forstjóri VÍS.

Fréttasafn
Deila frétt