Fréttasafn
|05.07.2018
Öryggi sumarhúsa
Alvarlegustu tjónin í sumarhúsum stafa af bruna og vatni þar sem allt getur eyðilagst. Algengustu og alvarlegustu slysin stafa af falli og verða þau oft í tengslum við byggingu eða viðhald húss.

Alvarlegustu tjónin í sumarhúsum stafa af bruna og vatni þar sem allt getur eyðilagst. Fallslys eru aftur á móti algengustu slysin og verða þau alvarlegustu oft í tengslum við byggingu eða viðhald húss.
Að sinna viðhaldi er mikilvægur hluti þess að eiga sumarhús. Til að komast að hafa eftirfarandi í huga:
Vera í línu ef unnið er uppi á þaki.
Ganga úr skugga um að stigi eða tröppur séu heilar, rétt settar saman og henti verkinu sem á að vinna.
Nota stiga með stömu efni undir stigakjálka, festa hann við hús eða láta einhvern standa við hann og gæta þess að hann renni ekki.
Nota stöðugar tröppur sem ekki er hætta á að renni í sundur.
Fara ekki með þunga hluti upp stiga.
Gæta þess að teygja sig ekki til hliðar heldur færa stigann til.
Undanfarin ár hefur mikil gróska verið í trjárækt og líkur á gróðureldum aukist samhliða. Þar getur útbreiðsluhraði elds verið ótrúlega mikill en hann fer m.a. eftir gróðri, vindi, hita, raka og landslagi.
Líkur á gróðureldum í sumarbústaðhverfum geta verið töluverðar þar sem svæðin eru oft umlukin gróðri. Þó svo ákveðnir landshlutar hafi legið í bleyti síðustu mánuði er mikilvægt að allir séu meðvitaðir um þessa hættu og kynni sér helstu forvarnir um góðurelda sem gefnar hafa verið út af stýrihóp um forvarnaaðgerðir gegn gróðureldum á Íslandi