Fréttasafn

|

18.09.2018

Ökum ekki syfjuð

Fjöldi slysa sem tilkynnt eru til VÍS ár hvert þar sem ökumaður sofnar undir stýri eru ekki talin á fingrum annarrar handar. Þau skipta tugum. Slysin eru yfir­leitt mjög alvarleg þar sem þau enda oftar en ekki með útafa­kstri eða frama­ná­keyrslu.

Svefn og þreyta er fjórða algengast orsök bana­slysa í umferð­inni hér á landi. Rann­sóknir sýna að það er þrisvar sinnum líklegra að slys vegna þreytu valdi dauðs­falli eða örkumlun heldur en hraðakstur þar sem sofandi ökumaður bregst ekki við aðstæðum.

Verum úthvíld við akstur. Farþegar þurfa að vera meðvit­aðir um að halda ökumanni félags­skap eða skipta við hann. Ef enginn er til að skipta við ökumann­inn, tökum þá 15 mínútna kríu ef svefn sækir að.

Tjóna­myndir frá VÍS

Fréttasafn
Deila frétt