Fréttasafn

|

20.02.2018

Öflugur en stuttur hvellur

Í fyrra­málið gengur yfir suðvest­an­vert landið mikill veður­hvellur sem sem getur hæglega valdið foktjóni og samgöngu­vand­ræðum. Veðrið gengur mjög hratt yfir og mun eigin­lega aðeins standa í 1 til 2 klst. þegar verst lætur. Á Suður­nesjum og á Höfuð­borg­ar­svæðinu hvessir upp úr kl. 7 með snjó­komu. Versta veðrið á því svæði stendur senni­lega frá 8 til 10 með A og SA 23-28 m/s meðal­vindi. Hvað hvassast verður í efri byggðum á Höfuð­borg­ar­svæðinu og blind­bylur á þjóð­vegum austan Reykja­víkur. Hvell­urinn gengur yfir landið en sérstak­lega hvasst verður vestan til á land­inu, frá Vest­manna­eyjum vestur um og norður í Húna­vatns­sýslur og Skaga­fjörð og má búast við að þar gangi veðrið niður um kl. 13.

Í fyrra­málið gengur yfir suðvest­an­vert landið mikill veður­hvellur sem sem getur hæglega valdið foktjóni og samgöngu­vand­ræð­um.  Veðrið gengur mjög hratt yfir og mun eigin­lega aðeins standa í 1 til 2 klst. þegar verst lætur.  Á Suður­nesjum og á Höfuð­borg­ar­svæðinu hvessir upp úr kl. 7 með snjó­komu.  Versta veðrið á því svæði stendur senni­lega frá 8 til 10 með A og SA 23-28 m/s meðal­vindi. Hvað hvassast verður í efri byggðum á Höfuð­borg­ar­svæðinu og blind­bylur á þjóð­vegum austan Reykja­vík­ur.  Hvell­urinn gengur yfir landið en sérstak­lega hvasst verður vestan til á land­inu, frá Vest­manna­eyjum vestur um og norður í Húna­vatns­sýslur og Skaga­fjörð og má búast við að þar gangi veðrið niður um kl. 13.

Ráðlagt er að allir taki mið af veðrinu á morgun og komi sér og sínum til og frá vinnu og skóla fyrir eða eftir að veðrið er gengið yfir þar sem ekki er talið skyn­samt að vera á ferð­inni á meðan mesti streng­urinn gengur yfir. Eins er mikil­vægt að fólk hugi að lausa­munum utan­dyra. Á það ekki hvað síst við um fyrir­tæki sem eru með mikið af lausa­munum utan­dyra eins og bygg­inga­verk­takar.

Fréttasafn
Deila frétt