Fréttasafn

|

06.12.2018

Nýr tjóna­grunnur tekinn í gagnið

Íslensku skaða­trygg­inga­fé­lögin fjögur mun frá og með 15. janúar næst­kom­andi hefja skrán­ingar í nýjan tjóna­grunn Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF) sem hýstur er hjá Cred­it­info.

Íslensku skaða­trygg­inga­fé­lögin fjögur mun frá og með 15. janúar næst­kom­andi hefja skrán­ingar í nýjan tjóna­grunn Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF) sem hýstur er hjá Cred­it­info. Grunn­urinn verður m.a. nýttur til að sporna við skipu­lögðum trygg­inga­svikum en slík mál hafa komið upp að undan­förnu í rann­sóknum á brotum skipu­lagðra glæpa­hópa hér á landi. Að mati lögreglu þá hafa þessir hópar áttað sig á því að hér á landi sé tiltölu­lega auðvelt að svíkja út bætur.

Áætlað er að trygg­inga­svik á Íslandi geti á heildina litið numið nokkrum millj­örðum króna á ári þó að erfitt sé að full­yrða um nákvæma tölu. Svik sem þessi leiða ótví­rætt til útgjalda trygg­inga­fé­laga og ber almenn­ingur þannig óbeint skaðann af trygg­inga­svikum. Á meðal þess sem verður hægt að sjá í tjóna­grunn­inum er hvort sama tjón hafi fengist greitt út hjá fleiru en einu trygg­inga­fé­lagi.

Upplýs­ingar um tjóna­grunninn koma fram í uppfærðum skil­málum trygg­ing­ar­taka. Í tjóna­grunninn verða skráð þau tjón sem tilkynnt eru til trygg­inga­fé­lag­anna sem aðild eiga að grunn­inum, að undan­skildum tjónum sem falla undir líf- og sjúk­dóma­trygg­ingar. SFF eru rekstr­ar­aðili tjóna­grunnsins en Cred­it­info hefur verið ráðið til að vera vinnslu­aðili grunnsins samkvæmt heimild frá Persónu­vernd. Viðskipta­vinir trygg­inga­fé­lag­anna geta nálgast upplýs­ingar um uppflett­ingar í tjóna­grunn­inum á mínum síðum Cred­it­info.

Fréttasafn
Deila frétt