Fréttasafn

|

11.04.2018

Nú skulu nagla­dekkin undan

Þann 15. apríl má ekki aka lengur um á nagla­dekkjum nema að aðstæður kalli á annað.

Þann 15. apríl má ekki aka lengur um á nagla­dekkjum nema að aðstæður kalli á annað. Margir standa því frammi fyrir að skipta yfir á sumar­dekk. Samkvæmt niður­stöður síðustu dekkja­könn­unar VÍS á tjóna­bílum viðskipta­vina má búast við að um þriðj­ungur ökumanna séu á heils­árs­dekkjum og þurfi ekki að skipta nema dekkin séu orðin léleg. Þeir þurfa þó að hreinsa tjöru af dekkjum og athuga loft­þrýst­ing.

Fyrir þá sem eiga eftir að skipta um dekk er gott að hafa í huga:

  • Skoða hversu gömul dekkin eru, fram­leiðslu­viku og ár má sjá á hlið þess

  • Að mynst­urs­dýpt sé næg, hún má ekki vera minni en 1,6 mm að sumri

  • Að réttur loft­þrýst­ingur sé til staðar, upplýs­ingar um hann má finna í hurð­ar­falsi bílstjóra­megin eða í handbók bíls

  • Að tjöruþvo dekkin

  • Ef kaupa á ný dekk borgar sig að vanda valið. Skoða m.a. merk­ingar sem segja til um viðnám, hávaða­mengun og grip í bleytu þar sem stöðv­un­ar­vega­lengd lengist á milli flokka um 3 til 6 metra ef ekið er á 80 km./klst.

Fréttasafn
Deila frétt