Fréttasafn

|

26.06.2018

Margir hjólandi á þjóð­vegi 1 í vikunni

Búast má við yfir 1.000 hjól­reiða­mönnum á stöðum þar sem aðstæður eru ekki alltaf eins og best verður á kosið fyrir þá í tengslum við WOW Cyclothon keppn­ina. Mikil­vægt er að þeir séu meðvit­aðir um eigið öryggi.

Þessa vikuna fer WOW Cyclothon hjól­reiða­keppnin af stað. Hjól­aðir verða 1.358 km hringinn í kringum landið, mest megnis á þjóð­vegi 1. Fyrstu kepp­endur fara út í dag, þriðju­dag, en flestir verða á ferð­inni miðvikudag til föstu­dags. Búast má við yfir 1.000 þátt­tak­endum á stöðum þar sem aðstæður eru ekki alltaf eins og best verður á kosið fyrir hjól­reiða­menn. Mikil­vægt er að þeir séu meðvit­aðir um eigið öryggi. Tryggi sýni­leika sinn og leitist við að hjóla í einfaldri röð þegar þess er kostur. Haldi sig hægra megin á veginum og hugi að öruggum skipt­ingum og séu með vel vakandi bílstjóra í bílunum sem fylgja liðinu.

Bílstjórar og hjól­reiða­menn verða líka að sýna hver öðrum tillit­semi. Sérstak­lega er mikil­vægt að bílstjórar gefi hjól­reiða­fólki nægt rými á veginum og þeir sem eru á stórum ökutækjum þurfa að vera meðvit­aðir um hættuna sem svipti­vindar geta valdið hjól­reiða­fólki er þeir aka fram­hjá.

Fréttasafn
Deila frétt