Fréttasafn

|

15.06.2018

Knatt­spyrnu­veisla fram undan!

Það hefur ekki farið fram hjá nokkrum manni að fram undan er mikil knatt­spyrnu­veisla og almenn gleði hjá íslensku þjóð­inni.

Það hefur ekki farið fram hjá nokkrum manni að fram undan er mikil knatt­spyrnu­veisla og almenn gleði hjá íslensku þjóð­inni.

Af þessu tilefni verður algengt að fólk muni hittast og horfa leikina saman, bæði í heima­húsum og innan fyrir­tækja. Við hjá VÍS viljum hvetja alla til þess að skipu­leggja gleðina vel og hluti af því er að tryggja að allir komist heilir heim ef áfengi er haft um hönd. Stjórn­endur fyrir­tækja geta sýnt fordæmi og hvatt starfs­fólk sitt til þess að sameinast í bíla, leigt hópbíla eða greitt fyrir leigu­bif­reiðar. Einstak­lingar eiga einnig að sýna fyrir­hyggju, nota almenn­ings­sam­göngur, fá far eða taka leigu­bif­reið.

Ölvunar­akstur er ein algeng­asta orsök alvar­legra umferð­ar­slysa á Íslandi en við viljum alls ekki að slík slys skyggi á HM gleðina 2018. Sýnum ábyrgð og fyrir­hyggju um leið og við skemmtum okkur konung­lega. Áfram Ísland!

Fréttasafn
Deila frétt