Fréttasafn

|

23.03.2018

Jón nýr í stjórn VÍS

Jón Sigurðsson kemur nýr inn í stjórn VÍS en aðal­fundur félagsins fór fram í gær. Sjálf­kjörið var í stjórnina en allir fjórir sitj­andi stjórn­ar­menn félagsins gáfu áfram kost á sér, auk Jóns.

Jón Sigurðsson kemur nýr inn í stjórn VÍS en aðal­fundur félagsins fór fram í gær. Sjálf­kjörið var í stjórnina en allir fjórir sitj­andi stjórn­ar­menn félagsins gáfu áfram kost á sér, auk Jóns. Jón er sjálf­stætt starf­andi lögmaður sem hefur víðtæka reynslu af stjórn­ar­setu á fjár­mála­mark­aði, hefur meðal annars setið í stjórn Klakka og Gamma.

Þá hafa Ólöf Hildur Páls­dóttir og Sveinn Friðrik Sveinsson verið kjörin í vara­stjórn félags­ins. Ólöf er sjálf­stætt starf­andi viðskipta­fræð­ingur sem situr meðal annars í stjórn Regins. Sveinn er viðskipta­fræð­ingur og starfar sem fjár­mála­stjóri Samtaka fyrir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var Svan­hildur Nanna Vigfús­dóttir endur­kjörin stjórn­ar­formaður VÍS og Helga Hlín Hákon­ar­dóttir var endur­kjörin vara­formaður stjórnar.

Nánar má lesa um stjórn­ar­menn í VÍS

 

Fréttasafn
Deila frétt