Fréttasafn

|

17.04.2018

Hversu lengi í barna­bíl­stól?

Alltof algengt er að forráða­menn hætti of snemma að hafa börn í barna­bíl­stól en síðasta stólinn á að nota þar til börn hafa náð 150 sm hæð eða þegar þau eru orðin 12 ára.

Alltof algengt er að forráða­menn hætti of snemma að hafa börn í barna­bíl­stól en síðasta stólinn á að nota þar til börn hafa náð 150 sm hæð eða þegar þau eru orðin 12 ára.

Í könnun sem Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg og Samgöngu­stofa gerðu á síðasta ári fyrir utan leik­skóla mættu 7% barna í leik­skólann laus eða eingöngu í bílbelti sem er ekki réttur búnaður fyrir börn á leik­skóla­aldri. Þess utan voru 14% barn­anna eingöngu á sessu sem er ekki ætlaður börnum fyrr en þau hafa náð 135 sm hæð sem fæst leik­skóla­barna hafa náð.

VÍS hvetur alla forráða­menn til að tryggja ávallt öryggi barna sinna og láta aldrei undan þrýst­ingi frá þeim. Hvorki að hætta of snemma að nota örygg­is­búnað né slaka á örygginu að öðru leiti t.d. þegar fara á stutta leið.  

Fréttasafn
Deila frétt