Fréttasafn

|

26.03.2018

Hertar reglur skila sér út í umferðina

Frá 2012 hefur VÍS gert kann­anir á stöðu dekkja á tjóna­bílum að vetr­ar­lagi. Mjög jákvætt er að sjá þróunina sem hefur orðið frá þeim tíma sem byrjað var að gera kann­an­irnar, sér í lagi eftir að reglur um mynstur á hjól­börðum yfir vetr­ar­tíma voru hertar haustið 2014.

Aldrei hefur hlut­fall þeirra sem eru með næga mynst­urs­dýpt, þ.e. 3 mm eða meira, verið eins hátt og í könn­un­inni núna eða 92%. Í könn­un­inni árið á undan var hlut­fallið 64% og árið 2015 var það 35%. Greini­legt er að auknar kröfur í reglu­gerð um mynst­urs­dýpt skilar sér tvímæla­laust út í umferðina í auknu öryggi.

Lang­stærsti hluti ökutækj­anna 100 sem skoðuð voru voru með sömu tegund dekkja undir bílnum eða 92%. Flestir bílanna voru á negldum dekkjum eða 42%. Heils­árs- og vetr­ar­dekk voru með sama hlut­fall eða 28% hvort um sig og einungis 2% var á sumar­dekkjum og hefur það hlut­fall aldrei verið eins lágt en var hæst 13% árið 2013. Sá þáttur sem kom verst út var loft­þrýst­ingur dekkj­anna. Hægt var að kanna hann hjá 70% bílanna og voru einungis 57% þeirra með réttan þrýst­ing. Hin 43% voru lang­flest með mjög mismun­andi loft­þrýsting á milli dekkja.

Fréttasafn
Deila frétt