Fréttasafn

|

01.03.2018

Hafdís nýr fram­kvæmda­stjóri Þjón­ustu hjá VÍS

Hafdís Hans­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Þjón­ustu hjá VÍS. Hafdís hefur frá árinu 2000 starfað hjá Arion banka og forverum hans, nú síðast sem svæð­is­stjóri útibúa á höfuð­borg­ar­svæð­inu. Hafdís hefur gengt ýmsum störfum á sínum ferli hjá bank­anum sem snúa öll að þjón­ustu við viðskipta­vini, m.a. verið útibús­stjóri í Kópa­vogi, forstöðu­maður þjón­ustu­vers og sviðs­stjóri þjón­ustukjarna á Viðskipta­banka­sviði.

Hafdís Hans­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Þjón­ustu hjá VÍS. Hafdís hefur frá árinu 2000 starfað hjá Arion banka og forverum hans, nú síðast sem svæð­is­stjóri útibúa á höfuð­borg­ar­svæð­inu. Hafdís hefur gengt ýmsum störfum á sínum ferli hjá bank­anum sem snúa öll að þjón­ustu við viðskipta­vini, m.a. verið útibús­stjóri í Kópa­vogi, forstöðu­maður þjón­ustu­vers og sviðs­stjóri þjón­ustukjarna á Viðskipta­banka­sviði. Hafdís hefur lokið mark­þjálf­ara­námi frá Háskól­anum í Reykjavík og rekstrar- og viðskiptanámi hjá Endur­mennt­un­ar­stofnun Háskóla Íslands. Hún er með BA gráðu í félags- og fjöl­miðla­fræði frá Háskóla Íslands og meist­ara­gráðu í kvenna­fræðum frá Lanca­ster University.

Fréttasafn
Deila frétt