Fréttasafn

|

23.10.2018

Góð dekk marg­borga sig

Undan­farna vetur hefur VÍS kannað ástanda dekkja á tjóna­bílum. Þar hefur þróunin verið mjög jákvæð. Hlut­fall sumar­dekkja farið úr 13% þegar verst lét niður í 2% og hlut­fall bíla með mynst­urs­dýpt undir 3 mm farið úr 65% niður í 8%.

Tími vetr­ar­dekkja er kominn víða um land, sér í lagi á heiðum. Hjá mörgum er það fastur liður að skipta um dekk tvisvar á ári á meðan aðrir eru á dekkjum sem notuð eru bæði sumar og vetur. Hvaða gerð sem notuð er, skiptir öllu að dekkin séu góð. Á veturna á mynst­urs­dýptin að vera a.m.k. 3 mm og gripið gott, sama í hvaða aðstæðum ekið er í.

Undan­farna vetur hefur VÍS kannað ástanda dekkja á tjóna­bílum. Þar hefur þróunin verið mjög jákvæð. Hlut­fall sumar­dekkja farið úr 13% þegar verst lét niður í 2% og hlut­fall bíla með mynst­urs­dýpt undir 3 mm farið úr 65% niður í 8%.

Loft­þrýst­ingur í dekkjum kom hins vegar illa út í síðustu könnun en þá var 43% ökutækja ekki með réttan þrýst­ing. Við hvetjum ökumenn til að gæta sérstak­lega að ástandi dekkja, tryggja að gæði séu góð, þrýst­ingur réttur og að dekkin séu tjöru­þvegin reglu­lega.

Fréttasafn
Deila frétt