Fréttasafn

|

23.11.2018

Fleiri ljós­lausir en áður

Um fimmt­ungur allra ökutækja voru ekki með aftur­ljós í lagi í könnun sem VÍS gerði um daginn á ljósa­búnaði bíla. Könn­unin sýndi svo ekki verður um villst að ökumenn verða að huga betur að því hvernig

Um fimmt­ungur allra ökutækja voru ekki með aftur­ljós í lagi í könnun sem VÍS gerði um daginn á ljósa­búnaði bíla. Könn­unin sýndi svo ekki verður um villst að ökumenn verða að huga betur að því hvernig ljósa­búnaði ökutækis þeirra er háttað.

Á dögunum gerði VÍS könnun á ljósa­notkun bíla í Ártúns­brekk­unni í Reykja­vík. Tæplega 11.000 bílar voru taldir og fylgst var með fram- og aftur­ljósum. Skoð­aður var munur á ljósa­notk­un­inni í birtu og myrkri og var mikill munur þar á. Í myrkri voru 96% ökutækja með fram­ljósin í lagi en 4% voru eineygð. Aftur­ljós voru í lagi hjá 97% ökutækja í myrkri en 2% voru eineygð og 1% alveg ljós­laus.

Hlut­fallið var síðan allt annað þegar ljósa­notkun var skoðuð í dags­birtu. Þá var 94% ökutækja með fram­ljósin í lagi, 4% eineygð og 2% alveg ljós­laus. Aftur­ljós voru aftur á móti eingöngu í lagi hjá 82% ökutækja. 16% ökutækja voru alveg ljós­laus og 2% eineygð.

Kann­anir á ljósa­notkun hafa verið gerðar reglu­lega hjá VÍS frá 2013. Miklar breyt­ingar hafa orðið á ljósa­notkun frá fyrstu könnun. Þá voru 3% ökutækja eineygð annað hvort að framan eða aftan og eingöngu 1% alveg ljós­laus. Frá þessum tíma hafa lög um ljósa­búnað ökutækja ekki breyst hér á landi, enn gildir að við akstur vélknúins ökutækis er skylt að nota lögboðin ljós eða önnur viður­kennd ljós bæði að framan og aftan allan sólar­hring­inn. Það sem hefur breyst er að dagljósa­bún­aður nýrri bíla er orku­spar­andi samkvæmt Evrópu­til­skipun frá 2011 sem þýðir að aftur­ljós margra bíla kvikna ekki fyrr en að dags­birta er komin niður fyrir ákveðin mörk og þá um leið og aðal­ljós kvikna.

Því er mikil­vægt að hafa í huga að ef dagljósa­bún­aður kveikir ekki á aftur­ljósum þá dugar ekki að nota hann, heldur verður að hafa aðal­ljósin kveikt.

Fréttasafn
Deila frétt