Fréttasafn

|

11.09.2018

Fimm á vespu!

Vespur (létt bifhjól í flokki I*) eru þægi­legur ferða­máti sem sífellt fleiri nýta sér, sér í lagi þeir yngri enda rafmagnsvespur verið vinsæl ferm­ing­ar­gjöf undan­farin ár. Ákveðnar reglur gilda um ferða­mátann sem flestir fara eftir en þó eru alltaf einhverjir sem ekki eru meðvit­aðir um þær eða virða þær að vett­ugi.

Einkum eru það þrjú atriði sem brjóta í bága við regl­urnar sem algengt er að sjá:

  • Of margir á hjóli en einungis ökumenn sem orðnir eru 20 ára mega gefa farþegum far og verður hjólið þá að vera gert fyrir farþega.

  • Enginn hjálmur á höfði en skylt er að hafa bifhjóla­hjálm á vespum.

  • Ekið of hratt en þessar vespur eru ekki ætlaðar fyrir meiri hraða en 25 km/klst.

Ekki er krafist rétt­inda til að aka vespu í flokki I en viðkom­andi verður að vera orðinn 13 ára. Heimilt er að aka á götum en mælt er með að aka á gang­stíg, hjóla­stíg eða gang­stétt og taka þar fullt tillit til annarra vegfar­enda.

Hjá VÍS ­falla þessar vespur undir F plús fjöl­skyldu­trygg­ingar þ.e. slys, þjófnaði á læstri vespu og tjón á henn­i. Vert er að nefna að slysa­trygging gildir aðeins fyrir þá sem falla undir F plús trygg­inguna en ekki aðra sem eru á hjólinu sama hvort um er að ræða ökumann eða farþega. Tjón sem ökumaður veldur öðrum er bætt, sé hann skaða­bóta­skyldur. Hægt er að skerða bætur ef ökumaður sýnir stór­kost­legt gáleysi.

*Létt bifhjól í flokki 1 eru vélknúin ökutæki á tveimur eða þremur hjólum sem ná ekki meiri hraða en 25 km/klst. hvort sem þau eru raf- eða bens­índrifin. Þá er miðað við hámarks­hraða sem fram­leið­andi bifhjólsins gefur upp.

Fréttasafn
Deila frétt