Fréttasafn

|

06.12.2018

Fengu flot­galla frá VÍS

VÍS afhenti Slysa­varna­skóla sjómanna 10 flot­galla að gjöf í vikunni en gall­arnir eru notaðir í kennslu við skól­ann, meðal annars á grunn- og endur­mennt­un­ar­nám­skeiðum sjómanna.

VÍS afhenti Slysa­varna­skóla sjómanna 10 flot­galla að gjöf í vikunni en gall­arnir eru notaðir í kennslu við skól­ann, meðal annars á grunn- og endur­mennt­un­ar­nám­skeiðum sjómanna.

Þetta er níunda árið í röð sem VÍS gefur skól­anum galla af þessu tagi og eru þeir því orðnir alls 90 tals­ins.

Þrátt fyrir að slysa­tíðni sjómanna sé ennþá há, saman­borið við aðrar starfs­stéttir, hefur dregið úr slysum undan­farin ár. Til marks um það var á árinu 2016 tilkynnt um 213 slys til sjós til Sjúkra­skrár Íslands en árið 2017 bárust 134 sams­konar tilkynn­ingar sem er fækkun um 37% milli ára.

Ljóst er að mikil­vægt starf Slysa­varna­skólans hefur gegnt lykil­hlut­verki við að ná þessum árangri og starfs­fólk VÍS því stolt af stuðn­ingi félagsins við skól­ann.

VÍS hefur lagt mikla áherslu á öryggi sjómanna undan­farin ár og unnið ötul­lega að forvarn­ar­málum með viðskipta­vinum sínum í sjáv­ar­út­vegi. Afrakstur þess samstarfs er meðal annars atvika­skrán­ing­ar­for­ritið ATVIK sem veitir yfirsýn yfir vinnu­slys og hættur á vinnu­stöðum. Forritið greinir tæki­færi til úrbóta og stuðlar að öruggari vinnu­stað. Þannig geta útgerðir gripið til aðgerða áður en slysin gerast.

Fréttasafn
Deila frétt