Fréttasafn

|

22.06.2018

Ertu að fara taka þátt í hjól­reiða­keppni?

Í F plús fjöl­skyldu­trygg­ingu eru allir slysa­tryggðir í keppnum í götu­hjól­reiðum sem almenn­ingi stendur til boða að taka þátt í. Gildir einu hvort keppnin fer fram á lokuðum brautum eða á þjóð­vegum þar sem bílar bruna fram hjá. Slysa­trygg­ingin í F plús gildir hins vegar ekki ef keppnin er lokuð almenn­ingi

Hjól­reiða­keppnir hafa á síðustu árum notið vaxandi vinsælda hjá almenn­ingi. Hér áður fyrr voru þær nær einungis á vegum íþrótta­fé­laga eða sambanda og félags­manna þeirra. Þróunin á síðustu árum hefur hins vegar verið sú að þær eru í auknum mæli opnar fyrir skrán­ingu almenn­ings og án atbeina íþrótta­sam­taka. Hefur þátt­tak­endum fjölgað mikið í kjöl­farið. Að taka þátt í slíkri keppni er hins vegar ekki hættu­laust, hvað þá þegar hjólað er á þjóð­vegum á miðju sumri. Það er því ekki úr vegi að stikla á stóru varð­andi trygg­ingar hjól­reiða­fólks í slíkum keppnum.

Í F plús fjöl­skyldu­trygg­ingu eru allir slysa­tryggðir í keppnum í götu­hjól­reiðum sem almenn­ingi stendur til boða að taka þátt í. Gildir einu hvort keppnin fer fram á lokuðum brautum eða á þjóð­vegum þar sem bílar bruna fram hjá. Slysa­trygg­ingin í F plús gildir hins vegar ekki ef keppnin er lokuð almenn­ingi.

Ef þú ert ekki með F plús eða ert með F plús og ætlar að taka þátt í keppni sem lokuð er almenn­ingi þá getur þú keypt slysa­trygg­ingu hjá okkur. Þú óskar eftir tilboði með því að fara í „Fá tilboð“ efst á síðunni og svo leið­beinum við með næstu skref.

Hjólin sjálf eru svo tryggð ef þú ert með innbúskaskó gagn­vart skyndi­legum, ófyr­ir­sjá­an­legum og utan­að­kom­andi atvikum. Við hvetjum þig til að lesa skil­mála og vátrygg­inga­skír­teini þín til að athuga hvort ­inn­búskaskó sé innifalið í F plús trygg­ingu þinni og hverjar hámarks­bætur eru og eigin áhætta. Þú getur skoðað trygg­ing­arnar þínar inn á . Ef þú ert ekki með innbúskaskó valið í F plús trygg­ing­unni þinni er nóg að senda tölvu­póst til okkar á vis@vis.is og óska eftir þeirri viðbót.

Að lokum hvetjum við alla til að veita ekki afslátt á öryggi. Vera ávallt í viður­kenndum örygg­is­bún­aði, vera sýni­leg, með hjólin í topp­st­andi og gæta sín í umferð­inni.

Fréttasafn
Deila frétt