Fréttasafn

|

01.06.2018

Ertu á leið­inni á HM í Rússlandi?

Það styttist í að íslenska karla­lands­liðið keppi á HM í fótbolta. Margir lands­menn ætla að fylgja strák­unum okkar til Rúss­lands og hvetja til dáða. Rúss­land er mörgum fram­andi og því ekki úr vegi að fjalla stutt­lega um ferða­trygg­ingar.

Það styttist í að íslenska karla­lands­liðið keppi á HM í fótbolta. Margir lands­menn ætla að fylgja strák­unum okkar til Rúss­lands og hvetja til dáða. Rúss­land er mörgum fram­andi og því ekki úr vegi að fjalla stutt­lega um ferða­trygg­ingar.

Ferða­trygg­ingar okkar gilda í Rússlandi eins og alls staðar annars staðar í heim­inum í 92 daga. Þú getur lesið þér til um  og .

Ef þú ert í vafa hvort þú sért með ferða­trygg­ingu getur þú skoðað trygg­ing­arnar þínar inn á 

Við höfum umsjón með ferða­trygg­ingum kred­it­korta Spari­sjóð­anna, Lands­bank­ans, Íslands­banka og Kred­it­korta.

Ferða­trygg­ingar kred­it­korta gilda í Rússlandi eins og annars staðar í heim­inum.

ATH. Bíla­leigu­trygging sem innifalin er í viðskipta-, plat­inum og premium kortum gildir  í Rússlandi. Við hvetjum því sem flesta til að nýta sér almenn­ings­sam­göngur sem eru í mörgum tilfellum fríar ef þú ert með Fan ID eða viður­kenndar leigu­bíla­þjón­ustur. Ef þú nauð­syn­lega þarft á bíla­leigubíl að halda mælum við með að þú kaupir trygg­ingu hjá viðkom­andi bíla­leigu.

Evrópska sjúkra­kortið, sem tryggir opin­bera heil­brigð­is­þjón­ustu innan EES, gildir ekki innan Rúss­lands. Það er því enn mikil­vægara en áður að vera með ferða­trygg­ingu.

Ef þú ferðast til Rúss­lands með Fan ID á meðan HM stendur þarftu ekki undir­ritaða ferðastað­fest­ingu til að skila inn í rúss­neska sendi­ráðið. Við mælum þó með því að þú sækir  sem alltaf er gott að hafa með sér og þarfnast ekki undir­rit­unar okkar. Ef þú ætlar hins vegar að ferðast til Rúss­lands án Fan ID eða utan tíma­bilið 5. júní til 25. júlí þá þarftu ferðastað­fest­ingu með undir­skrift frá okkur til þess að fá vega­bréfs­áritun inn í landið. Ferðastað­fest­inguna getur þú nálgast á næstu þjón­ustu­skrif­stofu okkar.

Leið­bein­ingar um hvernig bregðast á við tjónum eða slysum má nálg­ast 

Við minnum einnig á að borg­ara­þjón­usta Utan­rík­is­ráðu­neyt­isins er opin allan sólar­hring­inn.

 

Gott er að muna eftir að:

  • Segja aðstand­endum frá ferða­áætl­un­inni.

  • Taka mynd af vega­bréfinu á símann.

  • Láta aðstand­endur fá mynd af vega­bréf­inu.

  • Setja SOS síma­núm­erið í símann. +4570105050

  • Kynna sér staðina vel og ferða­mátana á milli þeirra.

  • Ekki taka óskráða leigu­bíla. Pantaðu frekar fyrir fram hjá viður­kenndum aðilum.

  • Læsa öllu heima og fá einhvern til að fylgjast með heim­il­inu.

  • Taka með sólar­vörn.

  • Sýna ábyrga hegðun.

  • Gæta vel að eignum og tilkynna þjófnað strax til lögreglu.

Góða skemmtun í Rússlandi og áfram Ísland!

Fréttasafn
Deila frétt