Fréttasafn
|13.07.2018
Er eftirvagninn þinn í lagi?
Ferðalög með eftirvagna er þægilegur og einfaldur ferðamáti enda yfir 17.000 ferðavagnar til á landinu. Alvarlegustu slysin í tengslum við vagnana verða þegar þeir losna aftan úr bíl á ferð, fjúka útaf eða rása svo mikið að þeir fara yfir á rangan vegarhelming.

Ferðalög með eftirvagna er þægilegur og einfaldur ferðamáti enda yfir 17.000 ferðavagnar til á landinu. Alvarlegustu slysin í tengslum við vagnana verða þegar þeir losna aftan úr bíl á ferð, fjúka útaf eða rása svo mikið að þeir fara yfir á rangan vegarhelming. Til að tryggja að allt fari vel á ferðalaginu er mikilvægt að huga að eftirfarandi:
Fara með vagninn í lögbundna skoðun
Hafa eftirvagninn ekki of þungan fyrir bílinn (hámarksþyngd má sjá í skráningarskírteini)
Vera viss um að legur, dekk, ljósabúnaður og tengibúnaður sé í lagi
Að ökuréttindi nái yfir samanlagða þyngd bíls og eftirvagns
Fara yfir búnað og tengingar við gas
Gæta þess að skrúfað sé fyrir gas eftir notkun
Hafa eldvarnabúnað til staðar
Nota öryggisvír þegar vagninn er dreginn
Nota framlengda hliðarspegla ef vagninn byrgir sýn
Skoða veðurspá áður en lagt er af stað
Tryggja svæðið fyrir aftan ef þarf að bakka
Aka með sérstakri gát á tjaldsvæðum
Fara að umferðarlögum og miða hraða ávallt við aðstæður