Fréttasafn

|

14.11.2018

Eldvarna­banda­lagið og Bruna­varnir Árnes­sýslu undir­rita samning

Eldvarna­banda­lagið hefur síðustu ár gert samn­inga við fjöl­mörg sveit­ar­félög um eigið eldvarna­eft­irlit á stofn­unum þeirra. Í gær skrifaði Eldvarna­banda­lagið undir samning við Bruna­varnir Árnes­sýslu en á þeirra starfs­svæði eru átta sveit­ar­fé­lög. Mark­miðið er að efla eldvarnir á stofn­unum sveit­ar­fé­lag­anna og á heim­ilum starfs­fólks þeirra.

Í gær skrifaði Eldvarna­banda­lagið undir samning við Bruna­varnir Árnes­sýslu en á þeirra starfs­svæði eru átta sveit­ar­fé­lög. Mark­miðið er að efla eldvarnir á stofn­unum sveit­ar­fé­lag­anna og á heim­ilum starfs­fólks þeirra. 

Þar sem sveit­ar­félög í Árnes­sýslu eru átta talsins og stofn­an­irnar fjöl­margar var ákveðið að byrja verk­efnið í öllum grunn­skólum sýsl­unnar. Skóla­stjórn­endur eða stað­genglar þeirra voru boðaðir á fundinn til að kynna fyrir þeim verk­efnið auk þess sem full­trúar frá Eldvarna­banda­laginu voru viðstaddir undir­skrift­ina.

Í stuttu máli gengur verk­efnið fyrst til að byrja með út á að hver skóli tilnefnir eldvarna­full­trúa til að gera mánað­ar­legar eldvarna­skoð­anir í húsnæði skól­ans. Að auki mun starfs­fólk hvers skóla fá fræðslu um eldvarnir en reynslan sýnir að slík fræðsla skilar sér ekki einungis í bættum eldvörnum á vinnu­staðnum heldur einnig á heim­ilum starfs­manna.

Fréttasafn
Deila frétt