Fréttasafn

|

28.02.2018

David Tysk til VÍS

David Tysk hefur verið ráðinn forstöðu­maður áhættu­stýr­ingar hjá VÍS. David, sem er fæddur í Svíþjóð, er með meist­ara­próf í verk­fræði frá konung­lega tækni­há­skól­anum í Stokk­hólmi, KTH.

David Tysk hefur verið ráðinn forstöðu­maður áhættu­stýr­ingar hjá VÍS.  David, sem er fæddur í Svíþjóð, er með meist­ara­próf í verk­fræði frá konung­lega tækni­há­skól­anum í Stokk­hólmi, KTH.

Hann hefur víðtæka reynslu af fjár­mála­starf­semi, bæði frá Svíþjóð þar sem hann starfaði meðal annars hjá Sænska seðla­bank­anum og Nordea bank­anum, sem og á Íslandi þar sem hann hefur starfað fyrir Seðla­banka Íslands og nú síðast hjá Lands­bank­anum þar sem hann gegndi stöðu forstöðu­manns í áhættu­stýr­ingu bank­ans.

Áhættu­stýring er eitt af fjórum lykil­starfs­sviðum vátrygg­inga­fé­laga. Hjá VÍS mun David heyra beint undir forstjóra og bera ábyrgð á að stefnu VÍS um samhæfða áhættu­stýr­ingu sé fram­fylgt en hún er grunn­urinn af ákvarð­ana­töku í fjár­fest­ingum og rekstri félags­ins.

David tekur við starfi forstöðu­manns áhættu­stýr­ingar af Þóri Óskars­syni. Þórir mun í sumar taka við stöðu trygg­inga­stærð­fræð­ings félagsins af Ragnari Þ. Ragn­ars­syni sem lætur af störfum vegna aldurs.

Fréttasafn
Deila frétt