Fréttasafn

|

23.08.2018

Bruni út frá spjald­tölvu

Fyrir nokkru kviknaði í á heimili út frá spjald­tölvu sem skilin var eftir í sófa. Tölvan var ekki í hleðslu heldur er talið að opin forrit sem voru í gangi hafi orðið þess vald­andi að sjálfs­íkveikja varð í tölv­unni þar sem loftun um hana var ekki næg.

Á dögunum kviknaði í heimili út frá spjald­tölvu sem skilin var eftir í sófa. Tölvan var ekki í hleðslu heldur er talið að opin forrit sem voru í gangi hafi orðið þess vald­andi að sjálfs­íkveikja varð í tölv­unni þar sem loftun um hana var ekki næg. ­Nánast allt innbúið eyði­lagðist og miklar skemmdir urðu á húsi eins og sést í meðfylgj­andi Stöðvar 2. Þó slíkir atburðir séu ekki algengir þá gerast þeir ekki bara í fréttum utan úr heimi heldur einnig hér á Íslandi. 

Látum þetta ekki gerast hjá okkur. Skiljum spjald­tölvur, sem og aðrar tölvur, alltaf eftir á hörðu undir­lagi og slökkvum á þeim eða í það minnsta stillum á „sleep mode.“

Fréttasafn
Deila frétt