Fréttasafn

|

13.12.2018

Brunar á heim­ilum flestir í desember

Tölfræði tjóna hjá VÍS sýnir að flestir brunar á heim­ilum eiga sér stað í desember og þar fast á eftir fylgir janúar. Algeng­ustu brunar á þessum tíma eru vegna kerta og elda­véla og eru nú þegar farnar að koma inn tilkynn­ingar um bruna í kertaskreyt­ingum.

Mikil­vægt er að fylgjast vel með kertum sem hafa verið tendruð og muna að slökkva á þeim. En þau krosstré geta brugðist og því má aldrei hafa umgjörð kerta með þeim hætti að hætta sé á að kvikni í út frá þeim ef gleymist að slökkva eða ef herbergi er yfir­gefið í skamma stund.

Algengt er að sjá skreyt­ingar í versl­unum og á samfé­lags­miðlum þar sem þessa er ekki gætt. Oft eru ótryggar undir­stöður, kerti sem standa of þétt saman en 10 sm verða að vera á milli þeirra og skraut, greni eða annað sem liggur alveg upp við kertin. Allt þetta bíður hætt­unni heim sem er aldrei áhætt­unnar virði þó að skreyt­ingin sé falleg.

Óvenju margir stórir brunar hafa orðið hjá VÍS þetta árið. Ekki aðeins hjá fyrir­tækjum heldur líka heim­ilum. Þriðj­ungs fjölgun varð á tíðni bruna á heim­ilum á milli áranna 2015 og 2016. Sem betur fer hefur sú þróun ekki haldið áfram heldur hefur brunum á heim­ilum fækkað frá 2016 og það sem liðið er núna af árinu eru teikn á lofti um að sú þróun haldi áfram.

VÍS ósk­ar þess að lands­menn eigi ör­ugga aðventu og jóla­hátíð og hvet­ur alla til þess að tryggja að virk­ir reyk­skynj­ar­ar, eld­varna­teppi og yf­ir­farið slökkvi­tæki séu til staðar á heim­il­inu og á stað sem all­ir vita um.

Af gefnu tilefni viljum við eins ítreka fyrir fólki að lögbundin bruna­trygging tryggir ekki innbú heim­il­is­ins. Einungis húsið sjálft og vegg­fasta hluti sem eru skildir eftir við flutn­ing. Innbús­trygging verður að vera til staðar svo innbú fáist bætt úr bruna en af og til koma upp tilfelli þar sem þá vernd vantar er bruni á sér stað.

Fréttasafn
Deila frétt