Fréttasafn

|

26.03.2018

Ársfundur Eldvarna­banda­lagsins

Ársfundur Eldvarna­banda­lagsins var haldinn í húsa­kynnum VÍS þann 16. mars.

Ársfund­urinn var sá áttundi í röðinni og var hann vel sóttur.

Á fund­inum kom fram að tólf sveit­ar­félög hafa nú þegar gert samn­inga við Eldvarna­banda­lagið um innleið­ingu eigin eldvarna­eft­ir­lits á undan­förnum miss­erum og er ljóst að þeim mun fjölga á næst­unni. Áætlað er að nær fimm þúsund starfs­menn sveit­ar­fé­laga hafi fengið fræðslu um eldvarnir á vinnu­stað og heima í tengslum við verk­efnið. Þetta kom m.a. fram í máli Garðars H. Guðjóns­sonar verk­efna­stjóra á fund­inum. Á árinu mun Eldvarna­banda­lagið einnig leggja áherslu á eldvarnir í land­búnaði og sjáv­ar­út­vegi. Vegna þess hélt Baldur Páls­son, slökkvi­liðs­stjóri Bruna­varna Aust­ur­lands, erindi um eldvarnir í land­búnaði og Guðmundur Helgi Sigfús­son, slökkvi­liðs­stjóri í Fjarða­byggð, erindi um eldvarnir í sjáv­ar­út­vegi.

Þá ræddi Elfa S. Leifs­dóttir, sálfræð­ingur hjá Rauða kross­inum, um sálræn eftir­köst elds­voða á heim­ilum og Kristján Rúrik Vilhelms­son, starfs­maður Mann­virkja­stofn­unar, fór yfir bruna­tjón síðasta árs.

Fréttasafn
Deila frétt