Fréttasafn

|

03.05.2018

Árið fer vel af stað hjá VÍS

VÍS hefur birt rekstr­arnið­ur­stöður fyrsta ársfjórð­ungs.

VÍS hefur birt rekstr­arnið­ur­stöður fyrsta ársfjórð­ungs. Það er skemmst frá því að segja að árið fer vel af stað hjá VÍS og hagn­aður meiri en ráð var gert fyrir.

Helstu niður­stöður fyrsta ársfjórð­ungs 2018

  • Hagn­aður tíma­bilsins eftir skatta nam 844 m.kr. saman­borið við 191 m.kr. á sama tíma­bili 2017.

  • Iðgjöld tíma­bilsins jukust um 10% frá sama tíma í fyrra.

  • Eigin tjóna­kostn­aður lækkaði um 5,4%.

  • Samsett hlut­fall var 97,3% en var 107,2% á sama tíma­bili í fyrra.

  • Tekjur af fjár­fest­inga­starf­semi námu 1.022 m.kr. saman­borið við 677 m.kr. á sama tíma 2017.

  • Hagn­aður á hlut nam 0,38 krónum saman­borið við 0,09 krónur á sama tíma­bili 2017.

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS segir þennan árangur framar vonum.

„Það er gleði­legt að sjá þróun samsetta hlut­fallsins undan­farna mánuði. Tólf mánaða meðal­talið okkar er nú 93,1%, sem byggir á traustum grunn­rekstri og gerir okkur betur í stakk búin að takast á við fram­tíð­ar­áskor­anir með viðskipta­vinum okkar. Það er svo með miklu stolti sem ég segi frá því að VÍS hlaut jafn­launa­vottun í byrjun þessa árs en vott­unin er viður­kenning á umfangs­mik­illi vinnu við að kort­leggja öll störf innan fyrir­tæk­isins og tryggja að allir okkar starfs­menn, konur jafnt sem karl­menn, fái sömu umbun fyrir sambærileg störf,“ segir Helgi

Fréttasafn
Deila frétt