Fréttasafn
|25.07.2018
Á að fara í veiði?
Slys við veiði geta verið allt frá litlum atvikum upp í mjög alvarleg slys. Margt er hægt að gera til að koma í veg fyrir þau.

Margir geta ekki hugsað sér að sumarið líði án þess að taka aðeins í stöng. Fjöldi skráðra og óskráðra veiðistaða eru óteljandi og auðvelt að gleyma sér við þessa iðju. Slys geta verið allt frá litlum atvikum upp í mjög alvarleg slys. Margt er hægt að gera til að koma í veg fyrir þau. Það er nú einu sinni þannig að slysin gera boð á undan sér, það þarf bara að þekkja og veita því athygli sem getur leitt til þeirra.
Skoða umhverfið í kringum veiðistaðinn t.d. hvort þar séu gjótur, varasamar brekkur eða steinar.
Skoða veiðistaðinn sjálfan m.a. út frá dýpt, straumum og gerð botns.
Nota höfuðfat með barði.
Nota gleraugu með polaroid gleri og lokun til hliða.
Spenna ávallt mittisbeltið á vöðlunum.
Setja gadda undir vöðlurnar ef botninn er sleipur.
Nota vaðstaf til að kanna botn og auka stöðugleika ef á að vaða.
Vera í flotvesti ef veitt er í straumþungri á.
Nota sólarvörnina óspart.
Hafa flugnanet meðferðis ef flugan verður aðgangshörð.
Vera í fatnaði í mörgum lögum ásamt vel vind- og vatnsheldri skel.
Vera með símann fullhlaðinn í vatnsheldum poka og hafa hleðslusnúru og aukahleðslu meðferðis.
Taka gps, áttavita, kort og flautu meðferðis, ef veitt er uppi á hálendi.
Gæta vel að þeim sem eru í kring þegar kastað er.
Muna að borða og drekka reglulega yfir daginn til að halda orku og hafa heita drykki meðferðis ef kalt er í veðri.
Skilja ferðaáætlun eftir hjá traustum aðila.