Fréttasafn

|

20.06.2018

5,5 vatns­tjón hvern dag

Á hverju ári verða um 2.000 vatns­tjón á heim­ilum viðskipta­vina VÍS en þau eru 65% allra húseig­enda­tjóna en 80% af tjóna­greiðslum. Engir sérstakir mánuðir skera sig úr heldur dreifast tjónin nokkuð jafnt milli mánaða.

Fæstir gera sér grein fyrir því hversu mikið rask getur orðið í kjölfar vatns­tjóns nema þeir sem hafa reynt það á eigin skinni. Skemmdir geta orðið gífur­legar, sér í lagi ef heitt vatn lekur.

Hvaða tjón eru þetta?

Um helm­ingur vatns­tjóna eru vegna leka í lögnum. Þrjár ástæður eru þar áber­andi hæstar. Þegar samskeyti lagna leka 34%, ytri tæring 28% og innri tæring 21%. Hinn helm­ingur tjón­anna eru vegna tækja og umgengni við þau. Helstu ástæður þar eru leki frá ofnum 20%, vatns­tengdar vélar 19%, blönd­un­ar­tæki og tengi­kr­anar 16%, vatns­lásar 14% og 11% þegar lekur frá baðkörum eða sturtum.

Er hægt að koma í veg fyrir þessi tjón?

Eins og svo oft áður þá marg­borga forvarnir sig. Gott viðhald á húsum, lögnum og viðtengdum tækjum er gríð­ar­lega mikil­vægt. Vera almennt meðvit­aður um umhverfi sitt. Fylgjast með hvort breyt­ingar verði á lit t.d. á máln­ingu og vatni, hvort málning og flísar losni, hvort fúkka­lykt sé til staðar, hvort hreyfing eða kalkút­fell­ingar séu á samskeytum ofna eða lagna við vaska og viðtengd vatns­tæki. Vera viss um að niður­föll séu hrein, ekkert hindri rennsli vatns að þeim og forðast að setja eitt­hvað í niður­föllin sem getur stíflað. Einnig er gott að nota vatns­skynjara þar sem vatns­tengdar vélar eru, sér í lagi þar sem engin niður­föll eru í rýminu.

 

Fréttasafn
Deila frétt