Fréttasafn
|14.10.2026
Sjáumst betur í myrkrinu
Dagarnir styttast hratt og nú er orðið dimmt bæði að morgni og kvöldi. Þá skiptir miklu máli að vera sýnileg í umferðinni, hvort sem við göngum, hlaupum eða hjólum.

Með endurskini sést viðkomandi allt að fimm sinnum fyrr
Einstaklingur sem notar endurskin getur sést allt að fimm sinnum fyrr en sá sem er án þess. Best er að hafa endurskinið hangandi á hliðum en annars bæði að framan og aftan.
Eftir sumarið er mikilvægt að hjólarar taka ljósin aftur í notkun og tryggja að þau virki. Endurskin í fatnaði og á hjólinu eykur einnig sýnileika gagnvart öðrum vegfarendum.
Nokkur einföld atriði geta aukið öryggið:
Notum endurskin þegar við erum á ferð í myrkri.
Veljum fatnað og fylgihluti með endurskinsmerkjum.
Kveikjum á hjólaljósunum og tryggjum að þau virki.
Setjum endurskin á töskur, bakpoka og yfirhafnir.
Gefðu þér góðan tíma til að þvera götur og verum viss um að ökumaður hafi séð þig.
Notum endurskin eða ljós á hunda og ketti sem eru úti.
Ef vantar endurskinsmerki hvetjum við þig til að panta þau í VÍS appinu og fá þau send heim.