Fréttasafn
|08.07.2026
Mikilvægi aukinnar þátttöku í brjóstaskimun
Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna á Íslandi. Á hverju ári greinast um 250–300 konur með sjúkdóminn og talið er að ein af hverjum níu til tíu konum greinist með brjóstakrabbamein einhvern tíma á ævinni.

Snemmgreining skiptir sköpum þegar kemur að meðferð og batahorfum. Því er mikilvægt að sem flestar konur taki þátt í reglubundinni brjóstaskimun þegar þeim er boðið.
Við hjá VÍS erum stolt af því að hafa stutt verkefni um áramótin 2024–2025 sem hafði það að markmiði að bæta aðgengi að brjóstaskimun með þróun rafrænnar tímabókunar í Landspítala-appinu. Lausnin er í áframhaldandi þróun þó svo hún sé komin í fulla notkun en hún gerir konum kleift að bóka, breyta eða afbóka skimunartíma á einfaldan hátt eftir að boðsbréf hefur borist.
Innleiðing lausnarinnar hefur þegar skilað jákvæðum árangri. Nú bókar um helmingur þeirra kvenna sem sækja brjóstaskimun tíma sinn í gegnum Landspítala-appið, sem sýnir að aukið aðgengi og einfaldari þjónusta getur haft raunveruleg áhrif á þátttöku.
Aukin þátttaka í brjóstaskimun getur stuðlað að því að fleiri tilfelli greinist á fyrstu stigum, þegar meðferð er oft árangursríkari og horfur betri. Það er mikilvægt skref í átt að bættri heilsu og auknum lífsgæðum kvenna.