Fréttasafn
|15.04.2026
Heit vinna
---english below---
Heit vinna er nauðsynleg í mörgum verkefnum og krefst sú vinna mikillar ábyrgðar. Með réttum undirbúningi, þekkingu, fullnægjandi slökkvibúnaði og vönduðu eftirliti á meðan og eftir að vinnu lýkur má draga verulega úr hættu á eldsvoða. Lærdómur af fyrri tjónum sýnir að smávægileg vanræksla getur haft gríðarlegar afleiðingar.

Árvekni í kringum heita vinnu er gríðarlega mikilvæg
Alvarlegar afleiðingar heitrar vinnu
Tiltölulega nýlegt dæmi um alvarlegar afleiðingar heitrar vinnu er Kringlubruninn þegar kviknaði í út frá lagningu þakpappa. En það eru ekki bara eignir sem geta skemmst í bruna heldur erum við líka að tala um alvarleg slys á fólki og jafnvel andlát.
Góður undirbúningur gríðarlega mikilvægur
Hefur brunaáhættumat verið gert?
Hafa eldfim efni verið fjarlægð eða þau varin með eldtefjandi efnum?
Þolir undirlag og nærliggjandi byggingarefni hitann?
Er loftræsting fullnægjandi, sérstaklega í lokuðum rýmum?
Er slökkvibúnaður á svæðinu?
Eru persónuhlífar notaðar?
Er einungis viðurkenndur og vel viðhaldinn búnaður notaður?
Hafa starfsmenn fengið viðeigandi þjálfun?
Er brunavakt til staðar meðan vinna stendur yfir og í að minnsta kosti 60 mínútur eftir að henni lýkur?
Slökkvibúnaður og kunnátta í notkun
Réttur og yfirfarinn slökkvibúnaður þarf ávallt að vera til staðar og aðgengilegur. Starfsmenn þurfa að kunna á búnaðinn og geta brugðist hratt við ef kviknar í. Til að það sé hægt verður búnaðurinn að vera nálægt en t.d. ekki niðri í bíl eins og of oft er raunin.
Handslökkvitæki (duft- eða froðutæki) og fleiri en eitt.
Brunaslöngur eða vatnsaðgangur ef mögulegt er.
Eldvarnateppi til að kæfa minni elda.
Gæsla eftir að vinnu lýkur
Ein mikilvægasta öryggisreglan, en jafnframt sú sem er oftast vanmetin, er eftirlit eftir að heitri vinnu lýkur. Eldur getur kviknað löngu eftir að vinnu er hætt vegna glóðar eða hita í efnum. Þetta á ekki eingöngu við um lagningu þakdúks þar sem eldur er notaður og getur farið í einangrun undir þaki, heldur einnig þar sem neistar við skurð geta farið í eldfim efni, myndað þar glóð og valdið eldi einhverju síðar.
Hafa þarf vakt á svæðinu í að minnsta kosti 60 mínútur eftir að vinnu lýkur.
Skoða sérstaklega falin svæði, svo sem undir þaki, í einangrun eða sprungum.
Fylgjast með hvort reykur eða hitamyndun komi fram.
Nota hitamyndavélar þar sem við á til að greina falinn hita.
Sjá nánar á vef Eldvarnabandalagsins.
---
Hot work
Hot work is necessary in many projects and involves a high level of responsibility. With proper preparation, knowledge, adequate firefighting equipment and careful monitoring during the work and after it is completed, the risk of fire can be significantly reduced. Experience from past incidents shows that seemingly minor negligence can have serious consequences.
Serious consequences of hot work
A relatively recent example of the serious consequences of hot work is the Kringlan fire, which started during the laying of roofing felt. It is not only property that can be damaged in a fire; we are also talking about serious personal injury and even loss of life.
Good preparation is absolutely vital
Has a fire risk assessment been carried out?
Have flammable materials been removed or protected with fire-retardant materials?
Can the substrate and surrounding construction materials withstand the heat?
Is the ventilation adequate, especially in enclosed spaces?
Is firefighting equipment available in the areat?
Are personal protective equipment (PPE) being used?
Is only approved and well-maintained equipment being used?
Have employees received appropriate training?
Is a fire watch in place while the work is being carried out and for at least 60 minutes after it is completed?
Firefighting equipment and competence in its use
Suitable and inspected firefighting equipment must always be available and easily accessible. Employees must know how to use the equipment and be able to react quickly if a fire starts. To make that possible, the equipment must be close at hand and not, for example, left in a vehicle, as is all too often the case.
Portable fire extinguishers (powder or foam), and more than one unit.
Fire hoses or access to water where possible.
Fire blankets to smother smaller fires.
Monitoring after work is completed
One of the most important safety rules, and at the same time one of the most underestimated, is monitoring after hot work has finished. Fire can break out long after work has stopped due to embers or heat in materials. This does not only apply to the laying of roofing membranes where open flame is used and fire can spread into the insulation under the roof, but also where sparks from cutting can ignite flammable materials, smoulder there and cause a fire later on.
A watch must be maintained in the area for at least 60 minutes after the work is completed.
Pay particular attention to concealed spaces, such as under roofs, in insulation or cracks.
Monitor for any signs of smoke or heat.
Use thermal imaging cameras where appropriate to detect hidden heat.
See more on the Eldvarnabandalagid.is website.