Fréttasafn
|05.08.2026
Forvarnir til varnar innbrotum
Undanfarið hefur lögreglan talað um aukningu á skráðum innbrotum á heimili og fyrirtæki og það sama erum við að sjá í okkar tölum. Mikilvægt að snúa vörn í sókn til að koma í veg fyrir þessi innbrot.

Á heimilum eru skartgripir, verkfæri og merkjavörur meðal þess sem oftast er stolið en einnig hafa komið upp tilvik þar sem matvælum, snyrtivörum og jafnvel nærfatnaði hefur verið stolið. Í sumum tilvikum er lítið um skemmdir en í öðrum eru verulegar skemmdir unnar á eignum við innbrotið.
Reynslan sýnir okkur að innbrot eru framin með ýmsum hætti og mismunandi hvað verið er að leita eftir. Upplifun okkar er að það er nokkuð mismunandi hvort um er að ræða skipulögð eða tilviljunarkennd innbrot.
Þótt erfitt sé að koma í veg fyrir öll innbrot geta markvissar forvarnir dregið verulega úr líkum á að brot séu framin og takmarkað tjón ef innbrot á sér stað.
Nokkur góð VÍS ráð
Tryggðu að allar hurðir og gluggar séu lokaðir og læstir, einnig þegar aðeins er farið frá í stutta stund.
Hafðu þjófavarnarkerfi og/eða öryggismyndavélar. Sýnilegar merkingar um slíkan búnað geta haft fælingarmátt.
Geymdu skartgripi, reiðufé og önnur verðmæti í læstum og vegg- eða gólffestum öryggisskáp.
Skildu verðmæti ekki eftir í augsýn, hvorki innandyra eða í bifreið.
Hafðu góða útilýsingu við innganga og í kringum húsið. Hreyfiskynjarar geta einnig haft fælingarmátt.
Geymdu stiga, verkfæri og annan búnað sem gæti auðveldað innbrot ekki utandyra.
Mundu að skjólveggir og gróður getur verið innbrotsaðilum skjól í verkum sínum.
Læstu reiðhjólum með tryggum lás við jarðfastan hlut líka ef þau eru geymd innandyra í sameign eða bílgeymslu.
Ef heimilið verður mannlaust í lengri tíma skaltu biðja nágranna um að fylgjast með og það getur verið gott að nota t.d. tímastillt ljós til að láta líta út fyrir að einhver sé heima.
Vertu vakandi fyrir óvenjulegum mannaferðum í hverfinu og tilkynntu grunsamlega háttsemi til lögreglu.
Skráðu og ljósmyndaðu verðmæta muni og varðveittu upplýsingar um tegund, raðnúmer og önnur auðkenni. Það getur auðveldað rannsókn mála og uppgjör tjóna.
Gakktu úr skugga um að innbúsverðmæti endurspegli raunverulegt virði innbúsins í heimilistryggingu þinni því ef til tjóns kemur miðast bæturnar við skráð innbúsverðmæti. Athugaðu sérstaklega að bætur fyrir skartgripi, úr og önnur verðmæti eru miðaðar við ákveðið hámark í tryggingunni.