Ábyrgðartjón ökutækis
Upplýsingar um umsýslu tjóns hjá öðru tryggingafélagi
Samkvæmt okkar mati ert þú í rétti og við teljum að tryggingarfélag mótaðila þíns eigi að bæta skemmdirnar á ökutæki þínu. Tjónið á því ekki að hafa áhrif á tryggingarnar þínar hjá VÍS.
Hér að neðan höfum við tekið saman helstu upplýsingar um næstu skref sem við vonum að nýtist þér.
Þar sem VÍS hefur ekki aðkomu að niðurstöðu annarra tryggingafélaga bendum við þér á að heyra í tryggingafélagi mótaðila og fá staðfest að þeirra niðurstaða sé sú sama.
Við höfum sent afrit af tjónstilkynningu þinni á viðeigandi tryggingafélag og eiga því upplýsingar um málið að liggja fyrir hjá þeim. Mögulega þurfa þau að heyra í sínum tryggingataka áður en þau geta staðfest bótaskyldu í málinu.
Tryggingafélögin eru vön að senda tölvupóst til sinna tjónþola þegar bótaréttur liggur fyrir með upplýsingum um næstu skref varðandi tjónamat og viðgerð. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um hvaða verkstæði tryggingafélögin eru í samstafi við á heimasíðum þeirra.
Ef ökutækið er ekki ökufært er best að láta vita hvar ökutækið er staðsett um leið og bótaskylda liggur fyrir. Þá ættu einnig að liggja fyrir upplýsingar um hvort greiðsla á bílaleigubíl sé fyrir hendi.
Ef svo leiðinlega vill til að þú eða aðrir hafi slasast í árekstrinum þá bendum við á að tilkynna þarf slysið sérstaklega. Það er gert í gegnum heimasíðu tryggingafélags mótaðila.
Ef niðurstaða tryggingafélags mótaðila er ekki sú sama og niðurstaða VÍS þá skaltu hafa samband við okkur varðandi framhaldið. Ef þú ert með kaskótryggingu hjá VÍS er möguleiki að afgreiða tjónið úr henni á meðan mat er lagt á málið hjá Tjónanefnd eða Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum. Við bendum þó á að kaskótryggingin ber eigin áhættu sem þarf að gera upp við afgreiðslu málsins.
Tryggingatakar hafa einnig þann rétt að leggja mál fyrir Tjónanefnd eða Úrskurðarnefnd ef þeir eru ósammála niðurstöðu tryggingafélaganna. Þá gefst málsaðilum tækifæri á að skila inn nánari greinagerð máli sínu til stuðnings. Sjá nánari upplýsingar um ágreiningsmál.
Gangi þér sem allra best!
----
VÍS áskilur sér rétt til að breyta ákvörðun um sakarskiptingu ef ný gögn eru lögð fram eða ef nefndir eða dómstólar komast að annarri niðurstöðu um sakarskiptingu.
Ef þú telur upplýsingarnar hér að ofan ekki eiga við þitt tjón, biðjum við þig um að hafa samband við okkur í síma 560 5000 eða á tjon@vis.is