Fjárhæðir heimilistryggingar
Heimilistrygging inniheldur innbústryggingu og fjölskyldu- og frítímatryggingu. Hægt er að bæta við innbúskaskó og ferðatryggingu. Fjölskyldusamsetning, ósk um tryggingavernd og eigin áhættu er misjöfn og því er hægt að setja trygginguna saman eins og hentar hverjum og einum.
Hægt er að velja um tvær mismunandi tryggingarfjárhæðir: Hefðbundnar fjárhæðir og betri fjárhæðir.
Hægt er að velja þrjár mismunandi eigin áhættur: Lága, miðlungs og háa.
Tryggingarfjárhæðin sem valin er ræður því hverjar hámarksbætur eru í tjónum. Við mælum með hefðbundnum fjárhæðum. Eigin áhættan sem er valin á við um eigin áhættu í innbústjónum. Eftir því sem eigin áhættan er hærri þeim mun ódýrari er tryggingin.
Fjárhæðir miðast við janúar 2026.