Fréttasafn

|

15.04.2025

VÍS opnar aftur á Akra­nesi

VÍS mun opna þjón­ustu­skrif­stofu á Akra­nesi í sumar

Skrif­stofan verður að Dalbraut 1, í sama húsnæði og Íslands­banki en stutt er síðan tilkynnt var um samstarf milli VÍS og Íslands­banka.

Opnunin er liður í stefnu VÍS um að efla enn frekar þjón­ustu sína á lands­byggð­inni en á síðasta ári bættist við ný skrif­stofa í Reykja­nesbæ. „Þrátt fyrir að hægt sé að gera mjög margt á netinu tengt trygg­ingum þá vill fólk hafa valmögu­leikann á að tala við aðra mann­eskju, sérstak­lega í flóknari málum. Þá vilja viðskipta­vinir okkar geta talað við einhvern sem getur leið­beint þeim og tekið raun­veru­legt tillit til aðstæðna þeirra. Í slíkum aðstæðum skiptir sköpum að geta boðið upp á framúrsk­ar­andi þjón­ustu í heima­byggð. Við erum full tilhlökk­unar að mæta aftur á Skag­ann”, segir Guðný Helga Herberts­dóttir forstjóri VÍS.

Ingi­björg Ólafs­dóttir, betur þekkt sem Inga Óla, mun veita skrif­stof­unni forystu en hún hefur nýlega tekið við starfi sem þjón­ust­u­stjóri VÍS á Vest­ur­landi. Inga býr yfir mikilli reynslu en hún hefur starfað hjá VÍS í þrjá áratugi og mun hún ásamt samstarfs­fólki sínu sjá til þess að viðskipta­vinir á Vest­ur­landi hljóti framúrsk­ar­andi þjón­ustu.

Inga Óla, þjónustustjóri VÍS á Vesturlandi

„Ég er stolt af því að leiða þjón­ustuna á Vest­ur­landi frá nýrri skrif­stofu okkar í mínum heimabæ. Við höfum verið með tíma­bundnar opnanir síðustu mánuði sem viðskipta­vinir og aðrir íbúar tóku mjög vel í þannig að það eru miklar gleðifregnir að hafa fundið varan­legt húsnæði fyrir starf­semina okkar á Akra­nesi,“ segir Inga Óla, þjón­ust­u­stjóri VÍS á Vest­ur­landi.

Starfs­maður VÍS mun sitja í útibúi Íslands­banka frá byrjun maí en skrif­stofa VÍS mun opna á sumar­mán­uð­um. 

Fréttasafn
Deila frétt