Fréttasafn

|

22.01.2025

VÍS hefur samstarf við Íslands­banka

VÍS skrifaði í dag undir samstarfs­samning við Íslands­banka en rauði þráður samstarfsins er aukinn ávinn­ingur viðskipta­vina í vild­ar­kerfum beggja félaga og enn betri fjár­mála­þjón­usta. VÍS mun koma til með að bjóða upp á þjón­ustu í nokkrum af útibúum Íslands­banka og verður sýni­legt í öllum dreifi­leiðum bank­ans: vef, appi og netbanka.

Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS:

„Við erum ákaf­lega stolt af því að kynna þetta samstarf við Íslands­banka. Með því stígum við stórt skref í að bæta upplifun viðskipta­vina okkar en með því að sameina krafta okkar gerum við viðskipta­vinum kleift að fá bæði fjár­mála-og trygg­inga­þjón­ustu á einum stað. Við hlökkum til að kynna útfærslur samstarfsins betur á næstu mánuðum og erum full­viss um að viðskipta­vinir muni upplifa aukinn ávinning enda leggja bæði félög áherslu á framúrsk­ar­andi þjón­ustu.“

Jón Guðni Ómars­son, banka­stjóri Íslands­banka:

„Við erum mjög spennt að bjóða trygg­ing­ar sem hluta af vöru­fram­boði Íslands­banka og auka þjón­ust­una við okk­ar viðskipta­vini. Við sjá­um fjöl­mörg tæki­færi í því að vinna með VÍS og nýta meðal ann­ars fríðinda­kerfið okk­ar, Fríðu, sem er eitt öfl­ug­asta sinn­ar teg­und­ar á land­inu. Veg­ferðin með VÍS er einnig hluti af sókn bank­ans á nýju ári og hluti af nýrri stefnu hans. Þar er horft til frek­ari kross­sölu og enn betri þjón­ustu. Við hlökk­um því mjög til að sækja fram í sam­starfi við VÍS.“

Nánari útfærsla verður kynnt á vormán­uðum.

Fréttasafn
Deila frétt