Fréttasafn

|

03.07.2025

Nýir forstöðu­menn hjá VÍS

VÍS hefur ráðið tvo nýja forstöðu­menn. Trausti Sigurður Hilm­isson hefur verið ráðinn forstöðu­maður mark­aðs­mála og upplifana og Jóhanna Hauks­dóttir verið ráðin forstöðu­maður einstak­lings­við­skipta. Þau hafa þegar hafið störf.

Trausti Sigurður Hilm­isson mun bera ábyrgð á mark­aðs­starfi og áfram­hald­andi uppbygg­ingu vörumerkis VÍS. Trausti hefur áralanga reynslu af mark­aðs­málum, sinnt markaðs­her­ferðum síðustu ára, borið ábyrgð á vörumerkja­rann­sóknum og vöru­þróun.

Trausti hefur starfað síðustu átta ár hjá VÍS en þar áður var hann hjá VERT mark­aðs­stofu. 

„Ég hlakka til að halda áfram því frábæra starfi sem unnið hefur verið í mark­aðs­málum VÍS undan­farin ár og tek stoltur við öflugu teymi sem ég þekki vel og hef verið svo heppinn að vera hluti af,“ segir Traust­i.  

Jóhanna Hauks­dóttir mun bera ábyrgð á sölu og þjón­ustu til einstak­linga um land allt og hafa yfir­um­sjón með öllum þjón­ustu­skrif­stofum VÍS. Hún mun leiða áfram­hald­andi vöxt á einstak­lings­markaði og samhliða því tryggja framúrsk­ar­andi þjón­ustu til viðskipta­vin­a.  

Jóhanna hefur síðast­liðin fjögur ár starfað sem verk­efna­stjóri hjá VÍS og leitt fjölda lykil­verk­efna sem tengjast staf­rænni umbreyt­ingu fyrir­tæk­is­ins. Áður starfaði hún hjá Arion banka, bæði að verk­efnum í staf­rænni þróun og þjón­ustu við viðskipta­vin­i.  

 „Ég er mjög spennt fyrir nýju hlut­verki hjá VÍS og því að leiða magnað teymi sem brennur fyrir því að veita viðskipta­vinum framúrsk­ar­andi þjón­ustu á hverjum degi. Við ætlum okkur stóra hluti þegar kemur að sókn og þjón­ustu­upp­lifun og ég hlakka til að taka þátt í þeirri spenn­andi vegferð,“ segir Jóhann­a.  

Ingi­björg Ásdís Ragn­ars­dóttir fram­kvæmda­stjóri sölu og þjón­ustu hjá VÍS:

„Ég er gríð­ar­lega spennt að vinna með Trausta og Jóhönnu, þau hafa fyrir löngu sannað sig innan VÍS, þekkja fyrir­tækið vel og eru sann­ar­lega í stakk búin að tryggja áfram­hald­andi sýni­leika VÍS, tryggja áfram­hald­andi aukn­ingu á markaðs­hlut­deild samhliða bættri þjón­ustu um allt land.“

Trausti Sigurður Hilm­is­son, forstöðu­maður mark­aðs­mála og upplifana og Jóhanna Hauks­dóttir, forstöðu­maður einstak­lings­við­skipta.

Fréttasafn
Deila frétt